Almost ready!
In order to save audiobooks to your Wish List you must be signed in to your account.
Log in Create accountShop Small Sale
Shop our limited-time sale on bestselling audiobooks. Don’t miss out—purchases support local bookstores.
Shop the saleLimited-time offer
Get two free audiobooks!
Now’s a great time to shop indie. When you start a new one credit per month membership supporting local bookstores with promo code SWITCH, we’ll give you two bonus audiobook credits at sign-up.
Sign up todayLúkasarguðspjall
This audiobook uses AI narration.
We’re taking steps to make sure AI narration is transparent.
Learn moreSummary
Í Lúkasarguðspjalli er Jesú lýst sem frelsara Gyðinga og frelsara alls heimsins. Höfundur guðspjallsins er Lúkas læknir sem var samstarfsmaður Páls postula (sbr. Kól 4.14) og hann er líka höfundur Postulasögunnar. Bæði ritin eru skrifuð ákveðnum viðtakanda sem nefndur er Þeófílus (Guðs vinur) og er ávarpaður í upphafi beggja rita. Í upphafi guðspjallsins eru frásögur af fæðingu Jóhannesar skírara og af fæðingu Jesú og þar er varðveitt ein bernskufrásaga af Jesú. Gleðin skipar háan sess í guðspjallinu, einkum í upphafsköflunum. Sumt efni hjá Lúkasi er hvergi varðveitt annars staðar, eins og lofsöngvarnir í upphafsköflunum, Lofsöngur Maríu (Magnificat, 1.46−1.56), Lofsöngur Sakaría (Benedictus, 1.68−1.79), söngur englanna á Betlehemsvöllum (Gloria in excelsis, 3.14) og Lofsöngur Símeons (Nunc dimittis, 2.29−2.32). Þá geymir Lúkasarguðspjall dæmisögurnar um miskunnsama Samverjann og glataða soninn. Lúkas ítrekar hvernig Jesús kallaði til sín fólk sem minna mátti sín í samfélaginu og getur margra kvenna sem fylgdu Jesú. Lúkas leggur áherslu á að heilagur andi mótar atburði guðspjallsins og lýkur guðspjallinu á fyrirheitinu um gjöf heilags anda (24.49). Þannig tengjast bæði Lúkasarrit Nýja testamentisins, guðspjallið og Postulasagan. Tákn Lúkasar guðspjallamanns er nautið.
Skipting guðspjallsins
1.1−1.4 Formálsorð höfundar
1.5−2.52 Fæðingarsögur Jóhannesar skírara og Jesú, Jesús tólf ára
3.1−4.13 Prédikun Jóhannesar skírara, skírn Jesú og freisting
4.14−9.50 Starf Jesú í Galíleu
9.51−19.27 Ferð Jesú frá Galíleu upp til Jerúsalem
19.28−21.38 Starf Jesú í Jerúsalem
22.1−23.56 Pína Jesú, dauði og greftrun (píslarsaga Lúkasar)
24.1−24.53 Upprisa Jesú