Almost ready!
In order to save audiobooks to your Wish List you must be signed in to your account.
Log in Create accountShop Small Sale
Shop our limited-time sale on bestselling audiobooks. Don’t miss out—purchases support local bookstores.
Shop the saleLimited-time offer
Get two free audiobooks!
Now’s a great time to shop indie. When you start a new one credit per month membership supporting local bookstores with promo code SWITCH, we’ll give you two bonus audiobook credits at sign-up.
Sign up todayThis audiobook uses AI narration.
We’re taking steps to make sure AI narration is transparent.
Learn moreSummary
Hrun Norðurríkisins (Ísraels) og fall Samaríuborgar fyrir Assýringum árið 722 f.Kr. er sögusvið orða Míka spámanns sem var dreifbýlismaður frá smáþorpi í Vestur-Júda. Míka var samtíðarmaður Jesaja. Þeir störfuðu í Júda á áttundu öld og voru sjónarvottar að stríðshremmingum landsins á síðari hluta aldarinnar.
Míka á það sameiginlegt með spámönnunum Amosi, Hósea og Jesaja að honum er ofar í hug að átelja hin félagslegu rangindi í landinu en að víta hernað og yfirgang Assýríumanna. Í bók Míka snýst Guð á sveif með hinum undirokuðu og gagnrýnir harðlega allt misferli valdhafanna. Þeirra bíður harður dómur en handan þess dóms eru gefin fyrirheit um annað samfélag og betra, nýjan leiðtoga og varanlegt friðarríki. Orðin í Míka 6.8 eru oft sögð vera nokkurs konar samnefnari fyrir það sem spámenn Gamla testamentisins höfðu að segja. „Maður, þér hefur verið sagt hvað gott er og hvers Drottinn væntir af þér: „Þess eins að þú gerir rétt, ástundir kærleika og þjónir Guði í hógværð.“
Skipting ritsins
1.1–3.12 Dómur yfir Ísrael og Júda
4.1–5.14 Endurreisn og friður
6.1–7.20 Ákærur og vonarboðskapur